Laugarhvammur sigraði liðakeppnina – Fjóla og Kolbrún stigahæstar
Lið Laugarhvamms fagnar sigri í Áhugamannadeild Norðurlands árið 2026. Ljósmyndir sem fylgja fréttinni: Freydís Bergsdóttir
Lokamót Áhugamannadeildar Norðurlands fór fram með miklum glæsibrag í gær þar sem keppt var í tölti. Eftir spennandi vetur liggja nú fyrir lokaniðurstöður í liða- og einstaklingskeppni deildarinnar árið 2026.
Lið Laugarhvamms með fullt hús stiga
Það ríkir engin óvissa um það hvaða lið væri sterkast í ár, en lið Laugarhvamms vann það fágæta afrek að sigra liðakeppnina í öllum greinum deildarinnar. Liðið endaði með 248,5 stig, öruggum 34,5 stigum á undan liði Syðra-Skörðugils.
Lið Laugarhvamms skipa þau Kolbrún Stella Indriðadóttir, Gréta B. Karlsdóttir, Herdís Einarsdóttir, Eva-Lena Lohi, Fríða Marý Halldórsdóttir og Ragnar Smári Helgason. Þjálfari liðsins er Jóhannes Ingi Björnsson.
Efstu lið í liðakeppni:
Laugarhvammur – 248,5 stig
Syðra-Skörðugil – 214 stig
N1 Smiðjan – 179 stig
Steinliggur – 163,5 stig
Norðurlagnir – 141 stig
Kolbrún Grétarsdóttir hlutskörpust í meira keppnisvönum
Í flokki meira keppnisvanra var það Kolbrún Grétarsdóttir sem stóð uppi sem stigahæsti knapi deildarinnar með 65 stig. Kolbrún átti frábæran vetur á Jaðrakan frá Hellnafelli, en þau sigruðu töltið á lokamótinu og höfnuðu í öðru sæti í fjórgangi.
Spire Ohlsson veitti henni harða keppni og endaði í öðru sæti, en hún sigraði fimmganginn í vetur. Kolbrún Stella Indriðadóttir hafnaði í þriðja sæti eftir sigur í fjórgangi og annað sæti í tölti.
Einstaklingskeppni – Meira keppnisvanir:
Kolbrún Grétarsdóttir – 65 stig
Spire Ohlsson – 62 stig
Kolbrún Stella Indriðadóttir – 55 stig
María Marta Bjarkadóttir – 49,5 stig
Herdís Einarsdóttir – 46 stig

Kolbrún Grétarsdóttir með hest sinn Jaðrakan frá Hellnafelli
Fjóla Viktorsdóttir drottnaði í minna keppnisvönum
Fjóla Viktorsdóttir sýndi mikla yfirburði í flokki minna keppnisvanra. Hún sigraði bæði fimmgang og tölt í vetur, auk þess að vera í öðru sæti í fjórgangi, og endaði með 82 stig.
Guðlaug Reynisdóttir átti einnig mjög stöðugan vetur á Þulu frá Bringu og reið til úrslita í öllum greinum, sem skilaði henni öðru sætinu í heildarstigakeppninni. Guðmundur Sigfússon fylgdi fast á eftir í þriðja sætinu.
Einstaklingskeppni – Minna keppnisvanir:
Fjóla Viktorsdóttir – 82 stig
Guðlaug Reynisdóttir – 75 stig
Guðmundur Sigfússon – 58,5 stig
Sigríður Kristín Sverrisdóttir – 48 stig
Hrefna Hafsteinsdóttir – 46 stig

Fjóla Viktorsdóttir með hest sinn Fána frá Sperðli
Úrslit í tölti á lokamótinu
Keppni í tölti var lokagrein deildarinnar og voru úrslit eftirfarandi:
Tölt T3 (Meira keppnisvanir):
1.-2. Kolbrún Grétarsdóttir / Jaðrakan frá Hellnafelli – 6,72
1.-2. Kolbrún Stella Indriðadóttir / Grein frá Sveinatungu – 6,72
3. Herdís Einarsdóttir / Griffla frá Grafarkoti – 6,61
4. Brynhildur Heiða Jónsdóttir / Ásaþór frá Hnjúki – 6,50
5. Þóranna Másdóttir / Dalmar frá Dalbæ – 6,22
6. Rakel Gígja Ragnsdóttir / Garún frá Grafarkoti

Kolbrún og Jaðrakan í töltkeppni
Tölt T7 (Minna keppnisvanir):
1.Fjóla Viktorsdóttir / Fáni frá Sperðli – 6,58
2.-3. Guðlaug Reynisdóttir / Þula frá Bringu – 6,50
2.-3. Guðmundur Sigfússon / Mídas frá Köldukinn 2 – 6,50
4. Ester Anna Eiríksdóttir / Hátíð frá Garðsá – 6,33
5.Fríða Marý Halldórsdóttir / Snilld frá Efri-Fitjum – 6,25
6.Björgvin Antonsson / Sesar frá Eskifirði – 6,08

Fjóla og Fáni í töltkeppninni
Laugarhvammur sigraði liðakeppnina – Fjóla og Kolbrún stigahæstar
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir
Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts