Laus pláss á bogfiminámskeið
Örfá sæti laus eru á hestabogfiminámskeið sem fer fram í apríl samkvæmt tilkynningu:
„Bogfimisetrið (www.bogfimisetrid.is) stendur fyrir helganámskeið í hestabogfimi nk. apríl og eru örfá pláss laus fyrir áhugafólk að taka þátt. Námskeiðin verða haldin í Reiðhöllinni hjá Eldhestum helgarnar 10.-12.04. og 17.-19.04.2015. Hægt er að mæta með eiginn hest eða fá hest lánaðan fyrir námskeiðið. Kennarinn er Pettra Engeländer, sem er ein af bestu alþjóðlegum hestabogaskyttum. Námskeiðargjald er ÍSK 65.000,-. Áhorfendur eru einnig hjartanlega velkomnir! Skráningin fyrir námskeiðin fer fram á [email protected] og ítarlegar upplýsingar um námskeiðin má finna á Facebook undir „Iceland Horseback Archery“. „
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH