Leynir frá Garðshorni á Þelamörk skiptir um eigendur
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk og Agnar Þór Magnússon
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk stóð efstur fjögurra vetra stóðhesta árið 2019 og efsti fimm vetra stóðhesturinn árið 2020. Leynir er með 8,77 í aðaleinkunn, 8,88 fyrir hæfileika og 8,58 fyrir sköpulag en hann hlaut m.a. 9,5 fyrir samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið og fegurð í reið.
Leynir var ræktaður af þeim Agnari Þór Magnússyni og Birnu Tryggvadóttur Thorlacius og var í eigu þeirra. Hann hefur nú skipt um eigendur en í WorldFeng er nýr eigandi D-19 ehf. sem er einkahlutfélag í eigu Öldu Jónu Nóadóttur og Ásgeir Svan Herbertssonar (Geira Kóka). Leynir er kominn í þjálfun hjá Eyrúnu Ýr Pálsdóttur og Teiti Árnasyni en í samtali við Eiðfaxa segir Teitur að planið sé að taka sér tíma í að kynnast hestinum en stefnt er síðan með hann í keppni í fimmgangi og A flokki og þá með Landsmót í huga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum