Lið Árbakka/Árbæjarhjáleigu leiðir Suðurlandsdeildina
Nú er farið að styttast í annan endann á Suðurlandsdeild Eques en eitt keppniskvöld er eftir þar sem keppt verður í tveimur greinum, tölti og skeiði í gegnum höllina. Það er því enn mikið af stigum eftir í pottinum og mjótt á munum svo allt getur gerst.
Árbakki/Árbæjarhjáleiga leiðir liðakeppnina með 202 stig. Níu stigum neðar er lið Vöðla/Snilldarverks með 193 stig og í þriðja lið Hestefli með 186 stig.
Liðin hafa skipst á að vera stigahæst í hverri grein svo keppnin í vetur hefur verið jöfn og spennandi. Fyrsta keppniskvöldið var keppt í tveimur keppnisgreinum og var það lið Miðkots/Skeiðvalla sem var stigahæst í parafimi og lið Bakkakots sem var stigahæst í slaktaumatölti. Lið Vöðla/Snilldarverks var stigahæst í fjórgangi annað kvöldið og lið Árbakka/Árbæjarhjáleigu var stigahæst í fimmgangi síðastliðin þriðjudag á þriðja kvöldinu.
Staðan í liðakeppni eftir 4 greinar af 6.
- Árbakki/Árbæjarhjáleiga 202
- Vöðlar/Snilldarverk 193
- Hestefli 186
- Miðkot/Skeiðvellir 173
- Krappi 164
- Bakkakot 160
- Raflagnaþjónusta Selfoss 157
- Húsasmiðjan 145
- Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 123
- Kastalabrekka 123
- Wicked viking 119
Síðasta keppniskvöldið fer fram 7. apríl í Rangárhöllinni og hvetjum við alla til þess að fjölmenna í Rangárhöllina.
Lið Árbakka/Árbæjarhjáleigu leiðir Suðurlandsdeildina
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu