Uppsveitadeildin Lið Dýralæknisins á Flúðum/ Hófadyns/Vesturkots

  • 3. janúar 2024
  • Fréttir
Liðakynning Uppsveitadeildarinnar veturinn 2024

Undirbúningur fyrir Uppsveitadeild 2024 er hafin en fyrsta mótið verður 9. febrúar og þá verður keppt í fjórgangi. Deildin hefur hafið liðakynningu og fyrsta liðið sem hún kynnir til leiks er lið Dýralæknisins á Flúðum/Hófadyns/Vesturkots. Þar leiða sama hesta sína reynsluboltar sem eru allir búsettir í Uppsveitum.

Liðið skipa:

Anna Kristín Friðriksdóttir 29 ára útskrifuð reiðkennari. Svarfdælingur sem vinnur við tamningar í Vesturkoti.

Ásdís Ósk Elvarsdóttir, 26 ára nýútskrifaður reiðkennari. Sjálfstætt starfandi tamningakona í Túnsbergi. Hef ánægju af öllu sem viðkemur hestum, keppni, ræktun og almennum hestaferðum.

Maiju Varis 30 ára reiðkennari og tamningamaður af Skeiðunum sem elska hesta í húð og hár og finnst gaman að spreyta sig í keppni inn á milli..

Jón William Bjarkason. 44 ára uppgjafar tamningamaður sem hefur gaman af því að keppa ef honum finnst hann eiga erindi til.

Þórarinn Ragnarsson tamningamaður og reiðkennari í Vesturkoti hann er jafnframt liðstjóri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link