Lið Efri-Rauðalæks og Líflands efst
Nú er frábæru kvöldi í KEA mótaröðinni lokið. Stemmingin á pöllunum var frábær og mikill metingur á milli liða. Keppendur mættu með feiklega góða og vel þjálfaða hesta. Knapar í flokknum 17 ára og yngri sýndu svo sannarlega að við þurfum ekki að kvíða framtíðinni í hestamennskunni og einnig var gaman að sjá nýja keppendur mæta í flokkinn minna vanir. Keppendur komu víða að allt frá Reyðarfirði í austri, norður fyrir að Reykjavík í suðri.
Stjórn KEA mótaraðarinnar þakkar áhorfendum fyrir sérlega skemmtilega stemmingu og öllum starfsmönnum mótsins þökkum við vel unnin störf.
Hér má sjá niðurstöður kvöldsins.
Staðan í liðakeppninni er:
65,67 stig Efri Rauðlækur – Lífland
64,70 stig Björg-Bautinn
61,86 stig G. Hjálmarsson
61,80 stig Ektafiskur
49,73 stig Útrás
Fjórgangur – Meira vanir:
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Líney María Hjálmarsdóttir / Völsungur frá Húsavík 7,70 G. Hjálmarsson
2 Baldvin Ari Guðlaugsson / Öngull frá Efri-Rauðalæk 7,37 Efri Rauðalækur – Lífland
3 Hans Kjerúlf / Askur frá Lönguhlíð 7,33 Efri Rauðalækur – Lífland
4 Jakob Víðir Kristjánsson / Gítar frá Stekkjardal 6,93 H Ektafiskur
5 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 6,93 H Ektafiskur
Fjórgangur – Minna vanir:
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Sigurjón Örn Björnsson / Kostur frá Ytra-Vallholti 6,67 Ektafiskur
2 Anna Catharina Gros / Sátt frá Grafarkoti 6,60 H Útrás
3 Sigmar Bragason / Svalur frá Garðshorni 6,60 H Björg-Bautinn
4 Guðrún Rut Hreiðarsdóttir / Snær frá Dæli 6,20 G.Hjálmarsson
5 Jón Páll Tryggvason / Úlfur frá Kommu 6,17 Björg-Bautinn
Fjórgangur – 17 ára og yngri
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Þóra Höskuldsdóttir / Sólfaxi frá Sámsstöðum 6,67 Björg-Bautinn
2 Ágústa Baldvinsdóttir / Kvika frá Ósi 6,60 Efri Rauðalækur – Lífland
3 Ólafur Ólafsson Gros / Fjöður frá Kommu 6,53 Útrás
4 Viktoría Eik Elvarsdóttir / Signý frá Enni 6,27 G. Hjálmarsson
5 Thelma Dögg Tómasdóttir / Taktur frá Torfunesi 6,03 Ektafiskur
6 Sylvía Sól Guðmunsdóttir / Skorri frá Skriðulandi 5,63 Björg-Bautinn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH