Lið Leiknis – hestakerra í KS deildinni
Meistaradeild KS hefst á gæðingafimi þann 2. mars. Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS 2022 er liðið Leiknir – Hestakerrur.
Konráð Valur Sveinsson er liðsstjóri liðsins en hann er reiðkennari frá Háskólann á Hólum sem og margfaldur heimsmeistari í skeiðgreinum. Með honum er Agnar Þór Magnússon hrossaræktandi á Garðshorni á Þelamörk, Jóhann Birgir Magnússon hrossaræktandi á Bessastöðum og reiðkennararnir Guðmar Þór Pétursson og Fredrica Fagerlund.
Þjálfari liðsins er Gestur Juliusson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH