Lið Lýsis og Sigurður stinga af – úrslit
Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá aðstandendum Meistaradeildar:
„Eftir að verðlaunaafhendingu var lokið í fimmgangi Meistaradeildar í gærkvöldi kom í ljós að villa var í reikniforriti því sem notað var við útreikninga í úrslitunum. Stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum harmar þessi mistök sem urðu til þess að rangir knapar voru verðlaunaðir í nokkrum sætum. Búið er að hafa samband við hlutaðeigandi og biðja þá afsökunar. Farið var yfir alla útreikninga kvöldsins og kom í ljós að villan var í þeim hluta er sneri að a- og b-úrslitum en allar niðurstöður úr forkeppni voru réttar. Stjórn deildarinnar harmar þennan atburð og mun gera allt í sínu valdi til að þetta endurtaki sig ekki í framtíðinni.
Það var Íslandsmeistarinn í fimmgangi Hinrik Bragason, Árbakki/Norður-Götur, á Glym frá Flekkudal sem sigraði fimmganginn í gær með einkunnina 7,38. Þeir félagar stóðu efstir eftir forkeppni og héldu því allt til enda með glæsibrag. Í öðru sæti urðu nafnarnir Sigurður Vignir Matthíasson, Ganghestar/Málning, á Mætti frá Leirubakka og Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á Sval frá Blönduhlíð með einkunnina 7,00. Í einstaklingskeppninni trónir Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á toppnum með 37 stig eftir að hafa lent í öðru til þriðja sæti í fimmgangnum. Mjótt er á munum í sætunum þar á eftir en í öðru sæti er Viðar Ingólfsson, Hrímnir, með 25 stig og í því þriðja er Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, með 24,5 stig. Í liðakeppninni jókst aftur bilið milli fyrsta og annars sætis en Lýsi trónir á toppnum með 170,5 stig. En Lýsisliðið átti tvo menn í a-úrslitum og einn í b-úrslitum. Mjótt er á munum hjá næstu tveimur liðum en í öðru sæti er Árbakki/Norður-Götur með 147 stig og í því þriðja er Top Reiter/Ármót/66°Norður með 146 stig.“
A-úrslit urðu eftirfarandi:
1. Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Glymur frá Flekkudal 7,38
2.-3. Sigurður Vignir Matthíasson Málning / Ganghestar Máttur frá Leirubakka 7,00
2.-3. Sigurður Sigurðarson Lýsi Svalur frá Blönduhlíð 7,00
4. Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Stakkur frá Halldórsstöðum 6,98
5. Vignir Siggeirsson Hrímnir Heljar frá Hemlu 6,79
6. Viðar Ingólfsson Hrímnir Már frá Feti 6,64
B-úrslit urðu eftirfarandi:
6. Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Stakkur frá Halldórsstöðum 6,86
7. Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Þulur frá Hólum 6,71
8. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Hreggviður frá Auðsholtshjáleigu 6,62
9. Edda Rún Ragnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Hreimur frá Fornusöndum 6,52
10. Sigurður Óli Kristinsson Lýsi Gígur frá Hólabaki 6,40
Staðan í stigakeppni einstaklinga og liða er eftirfarandi eftir mótið í gær:
Liðakeppni
1 Lýsi 170,5
2 Árbakki/Norður-Götur 147
3 Top Reiter/Ármót/66°Norður 146
4 Auðsholtshjáleiga 133,5
5 Hrímnir 129,5
6 Málning/Ganghestar 120,5
7 Spónn.is 76
Einstaklingskeppni
1 Sigurður Sigurðarson Lýsi 37
2 Viðar Ingólfsson Hrímnir 25
3 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi 24,5
4 Hinrik Bragason Árbakki/Norður-Götur 21,5
5 Hulda Gústafsdóttir Árbakki/Norður-Götur 21
6 Jakob Sigurðsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 20
7 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is 14
8 Sigurður Vignir Matthíasson Málning/Ganghestar 12
9 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga 11
10 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga 10
11 – 12 Bergur Jónsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 6
11 – 12 Vignir Siggeirsson Hrímnir 6
13 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 5
14 -15 Snorri Dal Hrímnir 4
14 -15 Teitur Árnason Árbakki/Norður-Götur 4
16 -17 John Kristinn Sigurjónsson Málning/Ganghestar 3
16 -17 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga 3
18 – 19 Valdimar Bergstað Málning/Ganghestar 2
18 – 19 Edda Rún Ragnarsdóttir Auðsholtshjáleiga 2
20 Sigurður Óli Kristinsson Lýsi 1
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH