Suðurlandsdeildin Lið Nonnenmacher sigrar aftur!

  • 28. mars 2023
  • Fréttir
Niðurstöður frá Suðurlandsdeildinni

Í kvöld fór fram fjórgangur í Suðurlandsdeild Cintamani í hestaíþróttum sem jafnframt var önnur keppni ársins í Suðurlandsdeildinni.

Það var lið Nonnenmacher sem stóð efst eftir kvöldið en liðsmenn þeirra voru í 1. og 6. sæti í flokki áhugamanna og 1. og 10.-11. sæti í flokki atvinnumanna. Glæsilegur árangur það!

Úrslit áhugamanna:
Sæti Keppandi Heildareinkunn lið
1 Birna Olivia Ödqvist / Tindur frá Árdal 6,93 Nonnenmacher
2-3 Vilborg Smáradóttir / Gná frá Hólateigi 6,87 Black Crust Pizzeria
2-3 Elisabeth Marie Trost / Maísól frá Steinnesi 6,87 Krappi
4 Hermann Arason / Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 6,70 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
5 Sarah Maagaard Nielsen / Djörfung frá Miðkoti 6,53 Húsasmiðjan
6 Katrín Eva Grétarsdóttir / Fannar frá Skammbeinsstöðum 1 6,37 Nonnenmacher

Úrslit atvinnumanna:
Sæti Keppandi Heildareinkunn lið
1 Helga Una Björnsdóttir / Ósk frá Stað 7,10 Nonnenmacher
2 Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Stimpill frá Strandarhöfði 7,03 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð
3-4 Vignir Siggeirsson / Kveikja frá Hemlu II 6,97 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð
3-4 Ólafur Ásgeirsson / Fengsæll frá Jórvík 6,97 Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær
5 Lea Schell / Pandra frá Kaldbak 6,87 Krappi
6 Hlynur Guðmundsson / Ísak frá Þjórsárbakka 6,60 Black Crust Pizzeria

Nánari úrslit er að finna í LH Kappa appinu.

Staðan í liðakeppninni eftir fyrstu tvær greinarnar er eftirfarandi:
Sæti Lið Samtals
1. Nonnenmacher 185,5
2. Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún 159
3. Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær 141
4. Black Crust Pizzeria 138,5
5. Krappi 131
6. Húsasmiðjan 128
7. Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð 116,5
8. Töltrider 110
9. Múli hrossarækt / Hestasál ehf. 79
10. Dýralæknir Sandhólaferju 70,5
11. Nagli 69,5
12. Syðri-Úlfsstaðir / Traðarás 61,5
13. Fiskars 12

Það er stutt í næstu grein en keppt verður í fimmgang þriðjudaginn 4. apríl í Rangárhöllinni á Hellu. Það verður spennandi að sjá hvaða hestum verður teflt fram þá!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar