Lið Nonnenmacher
Þá er komið að því að kynna fjórða liðið af þeim fjórtán sem skráð eru til leiks í Suðurlandsdeildinni í vetur, en það er lið Nonnenmacher.
Suðurlandsdeildin hófst formlega þann 1. mars s.l. með keppni í Parafimi Víking Brugghús & Coca-Cola.
Sjaldan eða aldrei hefur Parafimin verið jafn sterk og nú í ár, en vel undirbúin atriði og frábærar sýningar voru einkennandi hjá öllum liðum. Alls 56 knapar voru skráðir til leiks og sýndu hesta sína frábærlega í 28 pörum þar sem hvert par skipaði einn áhugamann og einn atvinnumann.
Staðan í liðakeppninni eftir Parafimina er þannig að lið BYKO trónir á toppnum með 110 stig, annað er lið Krappa með 100 stig, þá lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns með 90 stig og fast á hæla þeirra er einmitt lið Nonnenmacher með 86 stig.
Nóg er af stigum í pottinum enda fjögur mót eftir, en næst á dagskrá er Fjórgangur ZO-ON þriðjudaginn 15. mars n.k. Ljóst er að hart verður barist um efstu sætin og gríðarlega spennandi keppni framundan í Suðurlandsdeildinni í vetur!
UM NONNENMACHER
Nonnenmacher er þýskt fyrirtæki sem hefur í áratugi sérhæft sig í smíði á hágæða hestakerrum og vögnum.
Liðsstjóri liðsins er Larissa Silja Werner, en hún keppnir sem atvinnumaður:
Nafn: Larissa Silja Werner
Aldur: 28 ára
Starfstitill: Tamningarkona og reiðkennari í Kjarri en er líka að vinna í markaðssetningu.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fimmgangur, Parafimi og Tölt – en það verður bara koma í ljós
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Útskrift á Hólum – held að ég hef sjaldan verið jafn brosandi á hestbaki
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Skemmtileg samveru í undirbúningi og hjálpar til að maður er að rífa sig í gang aðeins fyrr um veturinn
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Verð 100% í brekkunni en væri helvíti gaman að fá að vera á vellinum líka
Aðrir atvinnumenn liðsins eru:
Nafn: Helga Una Björnsdóttir
Aldur: 31
Starfstitill: Hestakona
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Það kemur í ljós 🙂
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Margar mjög skemmtilegar og eftirminnilegar upplifanir.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Mjög gaman að fylgjast með sérstaklega, sjá mikið af ungum efnilegum hrossum og skemmtilegur félagsskapur.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi bæði!
Nafn: Sigvaldi Lárus Guðmundsson
Aldur: 36 og yngist með hverju árinu.
Starfstitill: Tamningamaður og reiðkennari.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Stefni á að taka þátt í sem flestum greinum.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar allt small hjá dóttur minni Elísabetu Líf á snillingnum Sumarliða frá Hárlaugsstöðum á Íslandsmótinu í sumar og riðu sig þar í úrslit í tölti.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hún gerir þjálfunina markvissari og styttir veturinn hjá manni því það er alltaf eitthvað sem maður hefur fyrir stafni með því að vera í deildinni.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vona að hestakosturinn minn geri það að verkum að við mætum á völlinn en ég ætla ekki að missa af hápunktunum þannig að ég verð eitthvað í brekkunni líka.
Áhugamenn liðsins eru eftirfarandi:
Nafn: Birna Olivia Agnarsdóttir Ödqvist
Aldur: 25 ára
Starfstitill: Námsmaður og starfa við tamningar og þjálfun á Fákshólum.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Öllum þeim greinum sem liðið vill hafa mig í.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Ekkert eitt sem kemur strax upp í hugann, en þar var mjög gaman að komast í úrslit á síðasta Landsmótinu mínu sem ungmenni á Hólum 2016.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Góð skemmtun og svo kemur í ljós hvernig þjálfunin hefur tekist hingað til og hvað þarf að æfa betur.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi verður nóg að gera, en að minnsta kosti í brekkunni.
Nafn: Marie-Josefine Neumann
Aldur: 28 ára
Starfstitill:
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Það kemur í ljós en vonandi í sem flestar
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hestaferðir á Íslandi. Það er engin betri leið til að njóta íslenska hestinn og náttúru Íslands.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Frábært tækifæri til að hittast og hafa gaman yfir vetrartímann.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á báðum stöðum en pottþétt í brekkunni
Nafn: Larissa Silja Werner
Aldur: 28 ára
Starfstitill: Tamningarkona og reiðkennari í Kjarri en er líka að vinna í markaðssetningu.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fimmgangur, Parafimi og Tölt – en það verður bara koma í ljós
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Útskrift á Hólum – held að ég hef sjaldan verið jafn brosandi á hestbaki
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Skemmtileg samveru í undirbúningi og hjálpar til að maður er að rífa sig í gang aðeins fyrr um veturinn
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Verð 100% í brekkunni en væri helvíti gaman að fá að vera á vellinum líka
Nafn: Katrín Eva Grétarsdóttir
Aldur: 22 ára
Starfstitill: Hrossa- og sauðfjárbóndi heima á Mjósyndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Það verður að koma í ljós
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Sýna fyrsta hrossið úr minni ræktun í fyrstu verðlaun
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Það er gaman að fá að taka þátt og hún heldur manni á tánum.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á vellinum.
Link á viðburðinn Fjórgang ZO-ON má nálgast hér: https://www.facebook.com/events/2752257531736373?ref=newsfeed
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH