Lið Vesturkots
Suðurlandsdeildin 2022 – Lið Vesturkots!
Lið Vesturkots er sjötta liðið sem við kynnum til leiks af þeim fjórtán sem taka þátt í deildinni í vetur.
Nú er önnur grein Suðurlandsdeildarinnar 2022 afstaðin, en það var Fjórgangur ZO-ON. Eftir jafna og feyki sterka forkeppni voru það lið BYKO og lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins jöfn að stigum.
Staðan í liðakeppninni eftir tvær fyrstu greinarnar er þannig að BYKO leiðir, þá Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún og svo lið Krappa.
Við þökkum ZO-ON kærlega fyrir stuðninginn við kvöldið, sem og hestabraut Fjölbrautarskóla Suðurlands sem mannar með okkur mótin. Næsta grein er Fimmgangur Fóðurblöndunnar sem fram fer þann 29. mars!
Suðurlandsdeildin er sýnd í beinni á Alendis TV!
UM VESTURKOT
Vesturkot er hrossaræktarbú á Skeiðunum, en Spuni frá Vesturkoti er flaggskip búsins. Fyrir utan hrossarækt er þar rekin alhliða tamninga- og þjálfunarmiðstöð. Einnig er þar boðið upp á reiðkennslu.
Að venju kynnum við fyrstann liðsstjóra liðsins sem er Matthías Kjartansson, en hann keppir sem atvinnumaður í deildinni:
Nafn: Matthías Kjartansson
Aldur: 31 árs
Starfstitill: Rafvirki
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi, fjórgang, fimmgang og tölt
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Námið á Hólum
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hjálpar mér að undirbúa sumarið
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi bæði
Aðrir atvinnumenn liðsins eru:
Nafn: Ólöf Rún Guðmundsdóttir
Aldur: 30
Starfstitill: Tamningamaður, reiðkennari og hjúkrunarfræðinemi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fjórgang og tölt
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hólaskóli
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hjálpar mér að undirbúa hestana fyrir sumarið
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Bæði!
Nafn: Karen Konráðsdóttir
Aldur: 28 ára
Starfstitill: Tamningakona og reiðkennari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi og fimmgang
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Það er alltof mikið, t.d. námið á Hólum
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hjálpar mér að setja skýr markmið í þjálfuninni fyrir veturinn og undirbýr vel fyrir sumarið
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi bæði!
Áhugamenn liðsins eru svo eftirfarandi:
Nafn: Hulda Finnsdóttir
Aldur: 32
Starfstitill: Blaðamaður hjá Eiðfaxa
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Skeið
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Jódís frá Ferjubakka III
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Rekur mig í að ríða meira út
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni
Nafn: Arnar Heimir Lárusson
Aldur: 27 ára
Starfstitill: Lögmaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi, fimmgangi, skeiði
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hestaferðir um Ísland
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hvatning til að undirbúa hesta fyrir sumarið.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni
Nafn: Sandra Steinþórsdóttir
Aldur: 36 ára
Starfstitill: Aðstoðarleikstjóri og framkvæmdastjóri í kvikmyndagerð.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Þær sem ég nýtist í.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Reiðtímarnir hjá Reyni Aðalsteinssyni og Einari Öder.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Koma mér í keppnisgírinn eftir margra ára fjarveru frá keppni.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni.
Link á næsta viðburð Suðurlandsdeildarinnar, Fimmgang Fóðurblöndunnar, má nálgast hér:
https://www.facebook.com/events/898477214178093
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH