Liðakynning í KS deildinni
Fimmta liðið sem við kynnum í KS-Deildinni er Hofstorfan 66¨°norður.
Stórbóndinn Elvar E. Einarsson er liðsstjóri og hefur hann aga á sínu liði.
Elvar er nánast óþarft að kynna, mikill keppnismaður sem gefur ekkert eftir þegar í brautina er komið.
Snjall skeiðreiðarmaður.
Bjarni Jónasson er þarna í liði. Bjarni mætir alltaf vel undirbúinn til leiks og er árangurinn eftir því, ætíð í fremstu röð.
Frá Hofi á Höfðaströnd mætir Lilja Pálmadóttir. Lilja hefur ávallt úr góðum hestum að velja og heyrst hefur að sá magnaði
fjórgangari Mói frá Hjaltastöðum sér klár í slaginn. Þá mega aðrir passa sig.Ungmennastjarnan
Gústaf Ásgeir Hinriksson er þarna liðsmaður. Gústi þekkir nánast ekkert annað en að vinna þær keppnir
sem hann tekur þátt í.
Í vetur fær hann alvöru samkeppni.Af suðurlandi kemur Sigurður Óli Kristinsson inn í liðið, snjall knapi með flotta ferilskrá en hlutverk hans í liðinu er ekki ljóst.
Eflaust mætir Siggi Óli sterkur til leiks. Þetta lið er ekki árennilegt og ætlar sér stóra hluti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH