 Liðakynning Vesturlandsdeildarinnar – Lið Laxárholts
								
												Liðakynning Vesturlandsdeildarinnar – Lið Laxárholts					
					
				 
									  
																	Vesturlandsdeildin verður á sýnum stað í vetur í reiðhöllinni á Borgarnesi. Fyrsta keppniskvöldið er 24. febrúar en keppt verður í fjórgangi en hér fyrir neðan er dagskrá deildarinnar.
Dagskrá
- Fjórgangur V1 föstudaginn 24. febrúar
- Slaktaumatölt T2 föstudaginn 10. mars
- Gæðingafimi föstudaginn 24. mars
- Fimmgangur F1 miðvikudaginn 5. apríl
- Tölt T1 og Flugskeið/100m föstudaginn 21. apríl
Stjórn deildarinnar er byrjuð að kynna liðin sem keppa í deildinni í vetur og fyrsta liðið sem þau kynna til leiks í Vesturlandsdeildinni 2023 er lið Laxárholts
Liðakynning
 
Tinna Rut Jónsdóttir, liðsstjóri
Tamningakona í Laxárholti. Er með svakalega hestaveiki sem er ólæknandi 🙂
 
Benedikt Þór Kristjánsson
Búsettur á Akranesi þar sem hann er að temja og þjálfa hross.
 
Heiða Dís Fjeldsted
Bý í Ferjukoti og rek þar tamningarstöð. Er menntuð reiðkennari og tamningarmaður frá Hólum.
 
Rakel Sigurhansdottir
Mosfellingur i húð og hár. Rek Fákafar hestaflutninga ásamt kærastanum Sævari Haraldssyni og erum með ræktun frá Traðarholti Er meira i hesthúsinu en heima hjá mér.
 
Iðunn Silja Svansdóttir
Býr í Borgarnesi þar sem hún stundar þjálfun og tamningar.
 Liðakynning Vesturlandsdeildarinnar – Lið Laxárholts
								
												Liðakynning Vesturlandsdeildarinnar – Lið Laxárholts					 
																							 
                 
             
                 
             Minningarorð um Ragnar Tómasson
                            	
                                                Minningarorð um Ragnar Tómasson                     
                 
             
                 
             
                 
             
                 
             
										 
                        
                 
                        
                 Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH
                                        	
                                                                     
                                Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH                            