Líf og fjör í Litla-Garði

  • 21. janúar 2011
  • Fréttir
Mikið tamið og hestasala að glæðast

Blaðamaður Hestablaðsins á Norðurlandi leit við hjá Stefáni Birgi Stefánssyni tamningamanni  í Litla-Garði í Eyjafjarðarsveit nýverið og þar var allt á fullu. „Ég er með þrjátíu og fimm hross á húsi núna og allt komið á fullt. Við erum þrjú við tamningarnar. Auk mín eru Ásdís Helga Sigursteinsdóttir og verknemi frá Hólaskóla sem heitir Anna Sonja Ágústsdóttir. Ég var einn í tamningunum í haust og frumtamdi dálítð þá, en nú er slagurinn hafinn fyrir alvöru.“ Stefán er bjartsýnn á árið eftir öll ósköpin sem gengu á í fyrra. „Þetta er allt að koma, ég seldi til að mynda ekkert hross frá mars og fram í nóvember í fyrra, en síðan hefur ræst úr því,“ segir Stefán að lokum og er stokkinn á bak.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link