Lífið hjá hestamannafélögunum
Bættar strætósamgöngur, smölun, skötuveislur og jólaböll eru meðal helstu fregna og tíðinda á vefsíðum hestamannafélagana í vikunni:
- Bessastaðanesið verður smalað á laugardag, 17. desember. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að mæta við félagshús Sóta kl. 13 þar sem fjallkóngur mun skipuleggja göngur og boðið verður uppá kakó og piparkökur í skreyttu félagsheimili. Fjórhjól eru vinsamlega afþökkuð – þar sem a.m.k. 5 ríðandi smalar verða á svæðinu. Frábært tækifæri fyrir ljósmyndara (í boði að sitja úti á pallbíl fyrir ljósmyndara).
- Fyrir norðan munu Léttismenn halda sitt árlega skötu og saltfiskveisla Léttis á laugardaginn í Top Reiter höllinni. Húsið opnar kl. 18 og verða kræsingarnar bornar á borð kl. 19. Verðið er enn óráðið en verður eins ódýrt og hægt er.
- Sunnudaginn 18. desmber kl. 14-16 blása Fáksmenn til jólatrésskemmtunar í félagsheimilinu. Vinsamlega skráið þátttöku og fjölda gesta á netfangið [email protected]. Aðgangseyrir 500 – 1000 kr.
- Skötulyktin mun ilma um hesthúsahverfið í Hafnarfirði á Þorláksmessu því Íshestar munu bjóða gestum og gangandi uppá vestfirska skötu með tilheyrandi meðlæti í hádeginu frá kl. 12:00-14:00. Venjulegt verð 3.000.- per mann en sértilboð til Sörlafélaga 2.500.- per mann! Kaffi innifalið. Nauðsynlegt er að panta borð í tíma. s: 555-7000 eða [email protected]
- Neisti hefur sett upp veglega dagskrá og hægt er að nálgast upplýsingar um námskeið, fræðslu og mót á heimasíðu félagsins.
- Þá hafa Sindramenn einnig birt dagskrá sína fyrir komandi ár og má nálgast viðburðardaga hér.
- Gustur auglýsir jólagjafabréf á námskeið eða járningu á vegum félagsins. Listi yfir námskeið sem fyrirhuguð eru hjá félaginu má nálgast hér. Einnig hefur Gustur hug á að bjóða upp á hestastrætó fyrir þá félagsmenn sem ekki hafa tök á því að fara á milli Kjóavalla og Glaðheima með eigin kerrum. Sniðugt!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH