Líklegir til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi

  • 21. nóvember 2021
  • Fréttir

Sjóður frá Kirkjubæ hefur náð lágmörkum til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi en hann á 50 sýnd afkvæmi og er með 122 stig í kynbótamati. Knapi: Teitur Árnason.

Nýtt kynbótamat var birt nú á dögunum

Til að stóðhestur hljóti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeið nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.

Eftirfarandi hestar eru líklegir til að hljóta heiðursverðlaun á Íslandi en þeim er raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins eins og það stendur nú. Það er þó misjafnt hversu mörg afkvæmi þessarra hesta þurfi að koma til dóms til að þeir nái lágmörkum. Sjóður frá Kirkjubæ hefur nú þegar náð lágmörkum til heiðursverðlauna og munu því fá afkvæmaorð birt í WorldFeng og verður svo verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef hann stenst enn kröfur til afkvæmaverðlauna.

Nafn Uppruni Ae. Ae. án skeiðs Fj. afkvæma
Sjóður Kirkjubæ 122 120 50
Eldur Torfunesi 120 112 44
Trymbill Stóra-Ási 120 110 42
Jarl Árbæjarhjáleigu 119 113 39
Kjerúlf Kollaleiru 115 119 48

 

Tekið skal fram að stóðhestar í öðrum löndum sem eru að nálgast eða hafa náð lágmörkum til heiðursverðlauna eru ekki með á listanum. Listinn miðast við þá hesta sem gætu komið fram með afkvæmahóp á næsta Landsmóti. 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link