Lisa Drath er knapi ársins í Þýskalandi
Lisa Drath og Ísöld frá Strandarhjáleigu. Mynd: Ulrich Neddens
Áfram höldum við að segja frá BlessAwards, árlegum verðlaunum Isibless sem veitt eru þeim knöpum og hestum er þykja hafa skarað fram úr á nýliðnu ári. Í gær var tilgreint um sigurvegara allra flokka á alþjóðavettvangi en í dag er röðin komin að þeim knöpum og hestum í Þýskalandi sem stóðu sig hvað best.
Knapi ársins í Þýskalandi var valinn Lisa Drath en eftir sveiflukennt ár þar sem hún þurfti að taka sér þriggja mánaða hlé frá keppni með brotna mjaðmagrind, þá lauk hún árinu með stæl á Þýska meistaramótinu í september með sjö gull, tvö silfur og eitt brons. Lisa bar sigurorð í þessum flokki af tveimur öðrum öflugum knöpum, þeim Jolly Schrenk og Irene Reber. Kvenkyns knapar báru augljóslega af á árinu því auk Lisu var Brynja Árnason valin Ungknapi ársins og Bjartasta von ársins var valin Lilja Thordarson. Þá var skeiðknapi ársins valin Franziska Kraft.
Keppnishestur ársins í Þýskalandi var valinn Spuni vom Heesberg. Þessi sjö vetra gamli sonur Nagla frá Þúfu þykir eiga framtíðina fyrir sér og varð annar í Tölt T2 á þýska meistaramótinu, setinn af ræktanda sínum Daniel Schulz .
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH