Lisa Schürger og Byr frá Strandarhjáleigu eru efst

  • 6. ágúst 2023
  • Fréttir
WorldRanking listi FEIF í samanlögðum fimmgangsgreinum

Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 2 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum og bestu tímunum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum/bestu tímum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.

Efst á WR listanum í samanlögðum fimmgangsgreinum eru Lisa Drath og Byr frá Strandarhjáleigu með meðaleinkunnina 7.63. Annar er Caspar Hegardt á Odda från Skeppargården og þriðja Erik Andersen á Farsæl fra Midtlund.  Þau eru öll skráð til leiks á Heimsmeistaramótinu, Lisa keppir fyrir Þýskaland, Caspar fyrir Svíþjóð og Erik fyrir Noreg.

Lisa er líka efst á árslistanum en þau hafa hæst hlotið 7,66 í einkunn í samanlögðum greinum í ár. Eitt par hefur komist nokkuð nálægt þeim en þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Nökkvi frá Hrísakoti hlutu 7,60 í einkunn þegar þeir urðu Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum fyrr í sumar.

Þorgeir Ólafsson á Goðasteinn frá Haukagili, Benjamín Sandur Ingólfsson á Júní frá Brúnum og Benedikt Ólafsson á Leiru-Björk frá Naustum III eru skráðir í þær greinar sem þarf til til að geta orðið samanlagðir fimmgangssigurvegari. Þorgeir og Goðasteinn hafa náð góðum árangri og eru með meðaleinkunnina 7,29. Benjamín og Júní eru ekki með neinn keppnisárangur og Benedikt og Leira-Björk hafa ekki reynt í ár við samanlagðan árangur svo það verður gaman að fylgjast með hvernig það fer í næstu viku.

WR listinn í samanlöðgum fimmgangsgreinum

Rider Countries Marks
1 Lisa Schürger
Byr frá Strandarhjáleigu
DE MC T2, F1, PP1 7.643
2 Caspar Hegardt
Oddi från Skeppargården
DK SE T2, F1, PP1 7.309
3 Erik Andersen
Farsæll fra Midtlund
NC NO SE T2, F1, PP1 7.262
4 Anne Frank Andresen
Vökull frá Leirubakka
DE DK NC NO T1, F1, PP1 7.207
5 Gerrit Venebrügge
Prins Valíant von Godemoor
DE MC T2, F1, PP1 7.099
6 Søren Madsen
Skinfaxi fra Lysholm
DE DK T1, F1, PP1 7.049
7 Mara Daniella Staubli
Hlébarði frá Ketilsstöðum
CH DE MC T2, F1, PP1 6.957
8 Haukur Baldvinsson
Sölvi frá Stuðlum
IS T1, F1, PP1 6.934
9 Leonie Hoppe
Fylkir vom Kranichtal
DE DK MC T2, F1, PP1 6.933
10 Sina Scholz
Nói frá Saurbæ
DE T1, F1, PP1 6.881
11 Felina Sophie Gringel
Leikari vom Teufelsmoor
DE T2, F1, PP1 6.858
12 Silvia Ochsenreiter-Egli
Heljar frá Stóra-Hofi
CH DE FR MC T2, F1, PP1 6.844
13 Thorsten Reisinger
Spaði frá Barkarstöðum
DE T1, F1, PP1 6.803
14 Vilhjálmur Páll Einarsson
Sigur frá Dalbæ
DE T2, F1, PP1 6.792
15 Silke Feuchthofen
Vaska vom Gestüt Ponsheimer Hof
DE T2, F1, PP1 6.789
16 Franziska Kraft
Bjalla frá Miðsitju
DE T2, F1, PP1 6.770
17 Irene Reber
Mist frá Hrafnkelsstöðum 1
DE T1, F1, PP1 6.678
17 Jonas Hassel
Trausti frá Þóroddsstöðum
DE T1, F1, PP1 6.678
19 Bjarne Fossan
Valíant fra Fossan
NO T2, F1, PP1 6.636
20 Elise Lundhaug
Grímur fra Gavnholt
NO T1, F1, PP1 6.564

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link