List eins og hún gerist best

  • 17. mars 2011
  • Fréttir
Árni Björn sigrar töltið í KS-deildinni

Rósberg Óttarsson:

Í gærkvöldi fór fram þriðja keppnisgreinin í Meistaradeild  Norðurlands og var komið að töltinu. Mikil eftirvænting var hjá fólki að sjá List frá Vakurstöðum aftur á keppnisvellinum en hún hafði verið frá keppni síðan 2006. Árni Björn og List sviku engan og tóku strax forustuna eftir forkeppnina með 7,50 í einkunn.

Á hæla þeirra komu Ólafur Magnússon á Gáska frá Sveinsstöðum og Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi  jafnir með 7,30. Bjarni Jónasson og Komma frá Garði tryggðu sig einnig í A úrslitin með 7,13 í einkun. Í B úrslitunum hafði Sölvi Sigurðarson sigur á Nönnu frá Halldórsstöðum með 7,0 í einkun og tryggði sér þar með þátttöku í A úrslitunum.

Árni og List tóku strax forustuna eftir hæga töltið og héldu henni allan tímann. Báráttan var meiri um annað sætið og eftir hæga töltið og hraðabreytingarnar voru Bjarni, Ólafur og Eyjólfur hnífjafnir. Ólafur og Gáski fóru mikinn í yfirferðinni og tryggðu sér annað sætið en Bjarni og Eyjólfur voru jafnir í því þriðja til fjórða. Það var mál margra gesta í Svaðastaðahöllinni að önnur eins tölt-úrslit hafi ekki sést áður í höllinni og verði seint toppuð. Árni og List hlutu 8,39 í einkunn og sigruðu með yfirburðum þrátt fyrir góðar sýningar Ólafs, Bjarna og Eyjólfs.

Árni Björn var að vonum sáttur eftir úrslitin og  við spurðum hann hvernig það hafi komið til að List er nú komin í brautina að nýju? „Það er búið að vera mikil óheppni með List undanfarið, fyrst drapst undan henni folald og svo hélt hún ekki í sumar. Þar sem ég var að fara í Hóla í vetur og List geld þá bauð ég Halldóru að taka hana með mér til þjálfunar sem hún þáði“, sagði Árni glaðbeittur að lokum.

A úrslit
Árni Björn Pálsson, List frá Vakurstöðum 8,39
Ólafur Magnússon, Gáski frá Sveinsstöðum 7,78
Bjarni Jónasson, Komma frá Garði 7,61
Eyjólfur Þorsteinsson, Klerkur frá Bjarnanesi 7,61
Sölvi Sigurðarson, Nanna frá Halldórsstöðum 6,72

B úrslit
Sölvi Sigurðarson, Nanna frá Halldórsstöðum 7,00
Tryggvi Björnsson, Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,94
Baldvin Ari Guðlaugsson, Blær frá Kálfholti 6,78
Hörður Óli Sæmundarson, Lína frá Vatnsleysu 6,72
Ísólfur L Þórisson, Freymóður frá Feti 6,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link