Loka skráningardagur í opna Stjörnublikkstöltið og kappreiðar Sindra
Hestaþing Sindra verður haldið daganna 10. og 11. Júní á Sindravelli við Pétursey. Á laugardagskvöld fer fram opin töltkeppni, Sjörnublikkstöltið.
“Skráningar í opna Stjörnublikkstöltið og kappreiðar Sindra verða að hafa borist fyrir kl 16:00 miðvikudaginn 8. júní.
Skráningargjald í töltið er kr 3.000.- peningaverðlaun fyrir 1. sæti og eigulegir sérsmíðaðir verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sætin. Í ár vígjum við nýjan íþróttavöll Sindravallar við Pétursey, en völlurinn hefur allur fengið upphalningu og er hinn glæsilegasti. Við hvetjum sem flesta að koma og keppa, safna sér punktum og/eða reynslu í keppni og njóta 60. Hestaþings Sindra með okkur.
Skráning er hjá: Petru á netfangið [email protected] og í síma 866-0786. Dagskrá hestaþings er á heimasíðu Sindra,” segir í tilkyninngu frá mótanefnd Sindra
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH