Lokamót í Uppsveitadeild æskunnar
Lokamót Uppsveitadeildar æskunnar fer fram á morgun, laugardaginn 28. apríl:
„Keppt verður í fimmgangi unglinga, fjórgangi barna og fljúgandi skeiði. Mótið er haldið í reiðhöllinni á Flúðum og hefst kl. 10.30. Þetta verður spennandi mót og gaman að fylgjast með börnum og unglingum spreyta sig í skeiðgreinum og fjórgangi. Hvetjum sem flesta til að mæta og fylgjast með,“ segir í tilkynningu frá æskulýðsnefndum Loga, Trausta og Smára.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH