Lokamót Meistaradeildar næsta föstudag
„Á lokamóti Meistaradeildarinnar sem haldið verður föstudaginn 5 apríl
verður keppt í slaktaumatölti og fljúgjandi skeiði. Mótið hefst kl.
18:30 og húsið opnar kl. 17.30.
Aðgangseyrir á mótið er 1.500 krónur fyrir þá sem eru ekki með ársmiða
og er forsala aðgöngumiða í fullum gangi í verslunum Líflands, Top
Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Eins og áður sagði hefst
mótið klukkan 18:30 og er um að gera að mæta snemma, tryggja sér sæti og
fá sér eitthvað gott í gogginn hjá Lindu og Helga í veitingasölu
Ölfushallarinnar.
Það má gera ráð fyrir harðri keppni í báðum greinum en reikna má með að
margir af fljótustu vekringum landsins verði skráðir til leiks í
skeiðinu og verður spennandi að sjá þá bruna í gegnum húsið. Í
slaktaumatöltinu eru engar smá stjörnur að mæta til leiks og er ekki
hægt að segja annað en að þetta sé allra sterkasta keppni í
slaktaumatölti til þessa í deildinni ef ekki á landinu. Ráslistar munu
liggja fyrir á miðvikudagskvöld.
Spennan í stigakeppninni fyrir lokamót Meistaradeildarinnar er
gífurleg. Eftir veisluna sem við fengum að njóta í úti-skeiðgreinum
deildarinnar, laugardaginn 23 mars s.l., opnaðist allt mótið bæði í
liða- og einstaklingskeppninni. Þar sem keppt verður í tveimur greinum
á úrslitakvöldinu eru 24 stig í boði fyrir fyrsta sætið í báðum greinum
og er því ljóst að einstaklingskeppnin verður gífurlega spennandi. Ekki
er spennan minni í liðakeppninni þar sem flest liðin hafa möguleika á
sigri.
Í fyrra vann Artemisia Bertus einstaklingskeppnina með 48,5 stig og lið
Topreiter/Ármóts vann liðakeppnina með 321 stig.
Staðan í einstaklingskeppni fyrir lokamótið í ár er eftirfarandi:
Sæti Knapi Stig
1 Guðmundur Björgvinsson 39,5
2 Viðar Ingólfsson 35
3 Sigurður V. Matthíasson 32
4 Árni Björn Pálsson 28,5
5 Þorvaldur Árni Þorvaldsson 27
6 Eyjólfur Þorsteinsson 26
7 Sigurður Sigurðarson 21
8 Ævar Örn Guðjónsson 20
9 Sigurbjörn Bárðarson 16
10 Jakob Svavar Sigurðsson 15,5
Og staðan í liðakeppninni er svona:
Sæti Lið Stig
1 Top Reiter / Ármót 295
2 Lýsi 262
3 Hrímnir / Export hestar 224
4 Ganghestar / Málning 221
5 Spónn.is/Netvistun 219,5
6 Hestvit / Árbakki 219
7 Auðsholtshjáleiga 202,5
8 Gangmyllan 157
Á föstudaginn munu svo áhorfendur taka þátt í að kjósa „Fagmannlegasta
knapann“ en þann titil vann Artemisia Bertus í fyrra og einnig verður
kosið um „Skemmtilegasta liðið“ en þann titil vann lið Topreiter/Ármóts
í fyrra.
Takið kvöldið frá strax og tryggið ykkur miða í tíma,“ segir í tilkynningu frá meistaradeild
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH