Lokamót Sparisjóðsliðakeppni framundan
Lokamót Sparisjóðs-liðakeppninnar fer fram í Þytsheimum á Hvammstanga föstudaginn 8. apríl en þá verður keppt í tölti.
„Keppt verður í 1. 2. 3. og unglingaflokki. Það verða tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt og verður ekki snúið við.
Skráning sendist á email [email protected] og lokaskráningardagur er þriðjudagurinn 5. apríl. Fram þarf að koma kennitala knapa, flokkur, IS númer hests og í hvaða liði keppandinn er. Einnig þarf að koma fram upp á hvaða hönd skal riðið.
Skráningargjald er 2.000.- fyrir fullorðna en 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Sparisjóðsmótaraðarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH