Lokaskráningardagur á Gæðingamót Hrings
Mynd/hringurdalvik.net
Gæðingamót Hrings og sameginleg úrtaka Hrings, Glæsis og Gnýfara vegna Landsmóts 2011 verður haldinn á Hringsholtsvelli föstudaginn 17. júní nk.
Styrktaraðili mótsins er Lífland.
Keppt verður í eftirtöldum greinum
A-flokkur
B-flokkur
Unglingar, ungmenni og barnaflokkur
Þá verður einnig opin Tölt keppni.
Og að lokum skal nefna skeiðgreinar, 100m skeið 150m og 250m skeið úr básum. – Rafræn tímataka.
Skráningargjald er kr. 2500 á fyrstu skráningu per knapa og 2000 á næstu skráningar.
Skráningargjald börn og unglingar kr 1000 á hverja skráningu.
Skráningarfrestur rennur út þriðjudag 14.júní kl 20:00
Skráning fer fram á heimasíðu félagsins (neðst í valstiku á forsíðu)
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 15. júní kl 20:00
Vinsamlegast sendið kvittun á netfang: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH