Lokasýning reiðkennaraefna
„Við minnum á reiðsýningu reiðkennaraefna, nú á föstudaginn.
Síðasti hópurinn í „gamla reiðkennaranáminu“ er nú að ljúka veru sinni hér heima á Hólum, og próf standa yfir.
Að vanda er í lokin boðað til veglegrar reiðsýningar, þar sem nemendurnir munu skarta einkennisjökkum FT, og verðlaun verða afhent.
Sýningin verður á reiðvelli Hólaskóla, föstudaginn 21. júní nk. og hefst klukkan 13.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa, til að koma á þessa sýningu, og heitum því að hún verði glæsileg og bæði nemendum og skólanum til sóma.
Að vanda eru allir velkomnir heim að Hólum.“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Hólum