Lukka efsta hrossið í Noregi

  • 28. desember 2022
  • Fréttir
Kynbótasýningar í Noregi

FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum. Samkvæmt tölum FEIF er Noregur fjórða landið á eftir okkur í fjölda á skráðum hrossum á lífi. 11.372 hross eru sögð vera í Noregi en fjöldi hrossa í Noregi hefur verið nokkuð stöðugur.

Fjöldri skráðra hrossa á lífi í Noregi síðast liðinn 5 ár

45 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Noregi í ár á þremur kynbótasýningum. Síðustu þrjú ár hefur fjöldi sýndra hrossa verið svipaður. Fimm hross hlutu fyrstu verðlaun í Noregi, öll voru þau fædd í Noregi fyrir utan eitt innflutt frá Íslandi. Flest hross voru sýnd á kynbótasýningunni í Telemark sem haldin var 13. – 15. maí. Dómarar á sýningunni voru Elisabeth Trost (IS), Heimir Gunnarsson (IS) og Nina Bergholtz (SE).

Ræktunarbúið Bergkåsa ræktaði efstu hryssuna í Noregi en af tíu efstu hrossunum í Noregi eru fimm frá búinu, öll sýnd af Elvari Þormarssyni. Hæst dæmda hrossið er Lukka fra Bergkåsa, 9 vetra, undan Garra frá Reykjavík og Þróuni fra Bergkåsa. Fyrir sköpulag hlaut hún 7,94 og fyrir hæfileika 8,42 en það er hæsta hæfileikaeinkunn sem gefin var í Noregi. Í aðaleinkunn hlaut hún 8,25.

Hæstu sköpulagseinkunnina hlaut Valíant frá Rauðalæk en hann hlaut fyrir sköpulag 8,46 og fyrir hæfileika 7,52 sem gerir 7,85 í einkunn. Ágúst er undan Organista frá Horni og Logadís frá Syðra-Garðshorni.

Vali pass

Valíant frá Rauðalæk Mynd: Stall Jakopsgard

Meðalaldur hrossanna sem hlutu fullnaðardóm í Noregi er 6,95 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 8,04, hæfileikaeinkunnar er 7,54 og aðaleinkunnar 7,71.  Sjö hross voru sýnd sem voru fjögurra vetra og jafnmörg fimm vetra.

Elvar Þormarsson sýndi flest hrossin eða tíu talsins en næstur á eftir honum er Stian Pedersen með átta hross.

Tíu hæst dæmdu hrossin í Noregi

Fæðingarnúmer  Nafn Uppruni í þgf, Sýnandi Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn
NO2013208162 Lukka Bergkåsa Elvar Þormarsson 7,94 8,42 8,26
IS2014184882 Bjartur Strandarhjáleigu Elvar Þormarsson 8,45 8,13 8,24
NO2015204273 Vatnalilja Kringeland Tryggvi Björnsson 8,26 7,96 8,07
NO2016208079 Milljón Bergkåsa Elvar Þormarsson 8,09 8,05 8,06
NO2015115090 Vinningur Jakobsgården Stian Pedersen 8,26 7,92 8,04
NO2016208075 Tilvera Bergkåsa Elvar Þormarsson 8,19 7,85 7,97
NO2016208078 Framsýn Bergkåsa Elvar Þormarsson 8,14 7,77 7,9
NO2015208121 Sigurrós Bergkåsa Elvar Þormarsson 8,16 7,75 7,89
NO2016111071 Sesar Skarstad Steinar Clausen Kolnes 8,25 7,68 7,88
IS2014281915 Fanney Rauðalæk Steinar Clausen Kolnes 8,14 7,75 7,88

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link