Málþing LH
Nú stendur Landssamband hestamannafélaga fyrir málþingi um úrbætur í reiðvegamálum sem er afar mikilvægt málefni hestamanna. Fjármagn til reiðvega hefur staðið í stað í langan tíma og dugar vart til að viðhalda þeim reiðvegum sem fyrir eru. Málþinginu er ætlað að setja saman áskorun til yfirvalda um aukið fjármagn til reiðvegagerðar og viðhalds, auk annara mikilvægra málefna eins og að skilgreina reiðvegi í umferðalögum og tryggja öryggi ríðandi umferðar gagnvart annari umferð.
Við vonum að þið hafið áhuga á að fjalla um málþingið sem haldið verður næstkomandi laugardag 14.október í Menntaskóla Borgarfjarðar Borganesi. Ekkert þátttökugjald og hádegisverður í boði LH.
Dagskráin er eftirfarandi
Mæting og skráning 10:00-10:30 (Léttur morgunverður)
10:30 Setning – Ávarp Ásta Þorleifsdóttir starfsmaður samgönuráðuneytisins.
10:45 Formaður ferða og samgöngunefnd LH – Halldór Halldórsson
11:00 Skráning og flokkun – Kortasjá – Sæmundur Eiríksson
11:15 Reiðvegir gerð og uppbygging Vegagerðin – Haraldur Sigursteinsson
11:30 Reiðleiðir í Þjóðgörðum – Einar Sæmundssen og Þórður Ólafsson
11:50 Umræður / fyrirspurnir
12:00 -13:00 Hádegisverður
13:00 Umferðaröryggi; reiðvegir/akvegir Ólafur Kr. Guðmundsson
13:15 Vegahald reiðvega – Arnór Halldórsson
13:30 Fulltrúi hestatengdrar ferðaþjónustu – Begga Rist
13:45 Jarðvegsvernd og reiðvegir – Gústav M. Ásbjörnsson – Landgræðslu ríkisins
14:00 Gamlar reiðgötur – Mosfellsheiðarleiðir – Bjarki Bjarnason
14:15 Umræður / fyrirspurnir
14:30-14:45 Kaffihlé
14:45 Vinnuhópar
• Hugmyndir um úrbætur í reiðvegamálum
Samantekt og útbúin áskorun um úrbætur í reiðvegamálum til yfirvalda
16:15 Lokaorð Lárus Ástmar Hannnesson formaður LH /Jóna Dís Bragadóttir varaformaður LH
Kort af Borganesi:
https://ja.is/kort/?d=hashid%3AG4EV9&x=360326&y=452191&z=9&type=map
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH