Markaðsátak, meistarar og verkfall

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Annáll 2015 - Vor

Árið 2015 var að sönnu viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Vorið var tími spennu og eftirvæntingar.

  • Reiðhallarsýningar voru haldnar víðsvegar um landið.
  • Markaðsátak íslenska hestsins var hrint í framkvæmd. Hagsmunaðilar tóku höndum saman og ákvaðu á setja fullan kraft í að styrkja ímynd íslenska hestsins á alþjóðavettvangi
  • Meistarar voru krýndir en Árni Björn Pálsson sigraði Meistaradeildina fyrir sunnan og Þórarinn Eymundsson sigraði Meistaradeild Norðurlands
  • Sigríður Björnsdóttir var valin dýraverndari ársins en hún var heiðruð fyrir yrir störf sín í þágu velferðar hesta.
  • Nýtt heimsmet í kynbótadómum en Sending frá Þorlákshöfn varð hæst dæmda klárhross heims en sýnandi hennar var Helga Una Björnsdóttir
  • Kynbótasýningar voru á sínum stað. Skráningar fóru rólega af staða en náðu hápunkti á miðssumarssýningum. Verkfall dýralækna setti strik í reikninginn en margir þurftu að seinka sýningum á fimm vetra stóðhestum. Haldin var aukasýning í Spretti eftir að verkfall leystist.
  • Áskell Heiðar ráðinn framkvæmdarstjóri Landsmóts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link