Markús á Austurlandi
Hinn þekkti höfðingi Markús frá Langholtsparti verður í girðingu í Stekkhólma á Fljótsdalshéraði í sumar. Þar verður honum sleppt næstu daga í góða girðingu sem er umvafin grasi. Afkvæmi Markúsar eru alltaf að skila sér til dóms og nú er hann búinn að ná 50 afkvæma markinu. Enn eru laus pláss undir Markús og er það Jósef Valgarð í síma 863 5215 sem fólk getur haft samband við ef það vill koma hryssum til Markúsar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH