Markus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti efstir

  • 1. ágúst 2023
  • Fréttir

Markus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti Ljósmynd: Ulrich Neddens

WorldRanking listi FEIF í 100 m. skeiði P2

Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 6 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum og bestu tímunum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum/bestu tímum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.

Efstir á WR listanum í 100 m. skeiði er Marcus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti með meðal tímann 7,27 sek. Markus og Kóngur keppa fyrir Sviss. Þriðji á listanum er Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum en þeir eru efstir á árslistanum en besti tími þeirra í ár er 7,33 sek. Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum III eru þriðju á árslistanum enn með besta tímann ársins á árslistanum eða 7,19 sek. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri munu einnig keppa fyrir Ísland í greininni.

Það er gaman að sjá að á WR listanum er Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi í 12 sæti en þau keppa í greininni sem ungmenni. Þau eru í 5 sæti á árslistanum en besti tími þeirra er 7,34 sek.

Það verður hörkuspennandi að fylgjast með skeiðinu á Heimsmeistaramótinu en við ættum að vera nokkuð sterk á þeim vængnum.

WR listi FEIF í 100 m. skeiði

Rider Countries Marks
1 Markus Albrecht Schoch
Kóngur frá Lækjamóti
CH DE MC also 51: 7.837
7.13; 7.33; 7.35 (of 9)
7.270
2 Konráð Valur Sveinsson
Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
IS also 17: 7.580, 27: 7.677
7.22; 7.36; 7.38 (of 6)
7.320
3 Hans Þór Hilmarsson
Jarl frá Þóroddsstöðum
IS 7.33; 7.36; 7.39 (of 8) 7.360
4 Filippa Helltén
Óðinn from Inchree
DK NC SE 7.35; 7.39; 7.46 (of 11) 7.400
5 Teitur Árnason
Drottning frá Hömrum II
IS 7.19; 7.53; 7.54 (of 10) 7.420
6 Ingibergur Árnason
Sólveig frá Kirkjubæ
IS 7.25; 7.46; 7.57 (of 9) 7.427
7 Natalie Fischer
Ímnir fra Egeskov
DK NC 7.31; 7.48; 7.51 (of 9) 7.433
8 Ladina Sigurbjörnsson-Foppa
Losti frá Ekru
AT CH DE 7.28; 7.48; 7.69 (of 8) 7.483
9 Jens Füchtenschnieder
Sproti vom Mönchhof
DE MC 7.34; 7.48; 7.64 (of 10) 7.487
10 Mette Mannseth
Vívaldi frá Torfunesi
IS 7.39; 7.50; 7.61 (of 4) 7.500
11 Jón Ársæll Bergmann
Rikki frá Stóru-Gröf ytri
IS 7.37; 7.59; 7.60 (of 10) 7.520
12 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir
Ylfa frá Miðengi
IS 7.34; 7.56; 7.68 (of 7) 7.527
13 Alexander Fedorov
Hrólfur frá Hafnarfirði
DE 7.46; 7.55; 7.70 (of 9) 7.570
14 Henrik Gohn
Rakel frá Skipaskaga
DK NC SE 7.45; 7.63; 7.64 (of 11) 7.573
14 Tania Højvang Jensen
Glúmur frá Þóroddsstöðum
DK NC SE 7.47; 7.53; 7.72 (of 8) 7.573
16 Carina Jylebäck
Jóra från Lövhagen
NC SE also 48: 7.830
7.51; 7.58; 7.64 (of 11)
7.577
17 Konráð Valur Sveinsson
Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
IS also 2: 7.320, 27: 7.677
7.32; 7.60; 7.82 (of 3)
7.580
18 Gústaf Ásgeir Hinriksson
Sjóður frá Þóreyjarnúpi
IS also 89: 8.050
7.49; 7.63; 7.63 (of 9)
7.583
19 Caroline Wangen
Ógn frá Bessastöðum
DK NC NO SE 7.53; 7.58; 7.65 (of 8) 7.587
20 Alicia Palm
Ljúfa från Ekeholm
SE 7.41; 7.64; 7.72 (of 7) 7.590

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link