Matthías Eiðsson kenndur við Brún er látinn

  • 17. ágúst 2020
  • Fréttir

Matthías Eiðsson á reiðhallarsýningu mynd: Þórir Tryggvason/Facebooksíða Léttis

Á heimasíðu hestamannafélagsins Léttis kemur það fram að hinn kunni hrossaræktandi og hestamaður, Matthías Eiðsson oftast kenndur við bæinn Brún á Akureyri sé látinn.
Í tilkynningunni segir;  „Með Matthíasi er genginn einn fremsti hrossaræktandi landsins og mun lífsstarf hans og framlag til hrossaræktarinnar í landinu ekki verða afmáð og lifa lengi enn með okkur hestamönnum.
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga heiðruðu Matthías einmitt fyrir þetta frábæra framlag hans til okkar hestamanna á síðasta ári.
Matthías lést umvafinn ástvinum sínum á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugardaginn 15 ágúst.
Hestamannafélagið Léttir þakkar Matthíasi samfylgdina og störfin í gegnum árin og sendir Hermínu Valgarðsdóttur eftirlifandi eiginkonu hans, börnum, barnarbörnum og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Eiðfaxi vottar aðstandendum Matthíasar sínar dýpstu samúðarkveðjur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link