Matthías Íslandsmeistari í samanlögðu í unglingaflokki
Mynd: Marta Gunnarsdóttir
Matthías Sigurðsson er Íslandsmeistari í samanlögðum árangri unglinga árið 2023. Matthías varð Íslandsmeistari í slaktaumatölti á Dýra frá Hrafnkelsstöðum og í fimmgangi á Hlekk frá Saurbæ.
Það er árangurinn í forkeppni sem telur til stiga en Matthías stóð sig einnig vel í fjórgangi V1 og var í 8. sæti á Æsu frá Norður-Reykjum. Í fimmgangi F2 varð hann í 1.-2. sæti á Hlekk frá Saurbæ.
ÁRANGUR:
2. sæti í Tölti T4 með Dýra frá Hrafnkellsstöðum – 7.37
2. sæti 100m skeið með Straum frá Hríshóli – 8.33
2. sæti í Gæðingaskeiði í PP1 með Tign frá Fornusöndum – 8.08
7. sæti í Tölti T1 með Drottningu frá Íbishóli – 7.00
*Gæðingakeppni telur ekki þar sem hún er gestagrein á mótinu
Hægt er að horfa á mótið á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH