Meistaramóti Fákasels og Ljúfs frestað

  • 21. febrúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Bágleg veðurspá setur strik í reikninginn.

Ákveðið hefur verið að fresta Meistaramóti Fákasels og Ljúfs vegna báglegrar veðurspár. Stefnt er að halda mótið eftir viku, eða sunnudaginn 1. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Ljúfs.

„Skráning verður opin áfram og þær skráningar sem þegar hafa borist halda sér. Ef fólk hefur ekki kost á að mæta eftir viku, þá vinsamlegast senda tölvupóst á [email protected] og afskrá ásamt bankaupplýsingum til að hægt sé að endurgreiða skráningagjöld.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link