Meistaradeild KS í hestaíþróttum
Keppni hefst klukkan 19:00 og eru allir áhugamenn um góða reiðmennsku og íslenska hestinn hvattir til að mæta og fylgjast með.
Sigurvegarnir frá því í fyrra, Lilja S. Pálmadóttir og Mói frá Hjaltastöðum, mæta aftur til leiks og eru til alls líkleg. Tveir leynigestir eru skráðir til leiks, en lið geta einu sinni á keppnistímabilinu teflt fram leynigesti sem ekki er skráður í lið í meistaradeild KS. Sina Scholz sem sigraði í síðustu keppni á Nóa frá Saurbæ, en þá var keppt í fimmgangi, mætir einnig með hann í fjórgang. Ísólfur Líndal mætir á Krumma frá Höfðabakka en þeir sigruðu gæðingafimi og urðu í öðru sæti í slaktaumatölti.
Fanney Dögg Indriðadóttir og Trygglind frá Grafarkoti sigruðu keppni í slaktaumatölti eftirminnilega og eru þær stöllur skráðar til leiks í fjórgangi. Þessi undantöldu eru aðeins brot af þeim úrvals knöpum og hestum sem skráðir eru til leiks á miðvikudagskvöldið.
Nr. Knapi Hestur Lið
Fjórgangur V1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
1 Fanney Dögg Indriðadóttir Trygglind frá Grafarkoti Skoies/Prestige
2 Magnús Bragi Magnússon Sigurvon frá Íbishóli Lið Flúðasveppa
3 Sina Scholz Nói frá Saurbæ Hrímnir
4 Artemisia Bertus Lyfting frá Hvammi Þúfur/Skoies
5 Anna Björk Ólafsdóttir Ölur frá Akranesi Leiknisliðið
6 Elvar Einarsson Gjöf frá Sjávarborg Hofstorfan
7 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir Nikulás frá Saurbæ Team Kerckhaert
8 Viðar Bragason Lóa frá Gunnarsstöðum Team Byko
9 Bjarni Jónasson Fannar frá Hafsteinsstöðum Hofstorfan
10 Ísólfur Líndal Þórisson Krummi frá Höfðabakka Skoies/Prestige
11 Þórarinn Eymundsson Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi Hrímnir
12 Leynigestur Leiknisliðið
-Hlé 15.mín-
13 Guðmar Freyr Magnússon Vonarneisti frá Íbishóli Lið Flúðasveppa
14 Fanndís Viðarsdóttir Þytur frá Narfastöðum Team Byko
15 Barbara Wenzl Krókur frá Bæ Þúfur/Skoies
16 Finnbogi Bjarnason Úlfhildur frá Strönd Team Kerckhaert
17 Arnar Bjarki Sigurðarson Megas frá Seylu Lið Flúðasveppa
18 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum Þúfur/Skoies
19 Guðmundur Karl Tryggvason Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku Team Byko
20 Valdís Ýr Ólafsdóttir Þjóstur frá Hesti Hrímnir
21 Elvar Logi Friðriksson Griffla frá Grafarkoti Skoies/Prestige
22 Snorri Dal Sæþór frá Stafholti Leiknisliðið
23 Leynigestur Team Kerckhaert
24 Lilja S. Pálmadóttir Mói frá Hjaltastöðum Hofstorfan
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands