Meistaradeild – ráslistar fjórgangur
Hulda og Kjúði er síðust í rásröð í fjórgangi, sem flestum knöpum finnst hinn mesti happadráttur.
Á fimmtudaginn fer fram fyrsta mótið af sex í Meistaradeild í
hestaíþróttum. Keppt verður í fjórgangi og hefst keppni klukkan 19:30 í
Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Margar stórstjörnur eru skráðar til leiks og
má gera ráð fyrir æsispennandi keppni allt til enda.
Forsala ársmiða er hafin og fer hún fram í verslunum Líflands, Top Reiter
og Baldvini og Þorvaldi. Ársmiðinn kostar krónur 5.000,- en aðgangseyrir á
hvert mót er krónur 1.500,- og hefst forsala aðgöngumiða fyrir
fjórgangsmótið í sömu verslunum á morgun, miðvikudag.
Mikil stemming hefur verið á fjórgangsmótunum undanfarin ár og má gera ráð
fyrir að árið í ár verði engin undantekning. Húsið tekur um 800 manns
eftir að stúkunni var breytt í fyrra og má gera ráð fyrir því að það verði
þétt setið á bekkjunum á fimmtudag því mikil stemming er fyrir mótinu.
Hér að neðan er rásröðin fyrir fjórganginn:
Rásröð Nafn Lið Hestur
1 Viðar Ingólfsson Hrímnir Nasi frá Kvistum
2 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Borði frá Fellskoti
3 Snorri Dal Hrímnir Gustur frá Stykkishólmi
4 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Ófelía frá Holtsmúla 1
5 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
6 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi
7 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ
8 Sigurður Óli Kristinsson Lýsi Alvar frá Nýjabæ
9 Anna Valdimarsdóttir Málning / Ganghestar Ketill frá Vakurstöðum
10 Sólon Morthens Spónn.is Glæsir frá Feti
11 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Vignir frá Selfossi
12 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Geisli frá Svanavatni
13 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum
14 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrafndynur frá Hákoti
15 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrímnir Röskur frá Sunnuhvoli
16 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót Vakar frá Ketilsstöðum
17 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
18 Sigurður Vignir Matthíasson Málning / Ganghestar Kall frá Dalvík
19 John Kristinn Sigurjónsson Málning / Ganghestar Kraftur frá Strönd
20 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Gautrekur frá Torfastöðum
21 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH