Meistaradeild ungmenna – lið Top Reiter

  • 3. febrúar 2021
  • Fréttir

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir er liðsstjóri Top Reiter liðsins. Mynd: Aðsend

Þriðja liðið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju er lið Top Reiter.

Liðsstjóri er Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir. Hún er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og vinnur á Kvistum. Gyða stefnir á að keppa í öllum greinum.

Thelma Dögg Tómasdóttir er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hún vinnur í Vesturkoti og stefnir á að keppa í öllum greinum.

Sigrún Högna Tómasdóttir er í Fjölbrautaskóla Suðurlands og vinnur heima með skólanum. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.

Hafþór Hreiðar Birgisson er 2. árs viðskiptafræðinemi í HÍ. Hann stefnir á að keppa í öllum greinum.


Meistardeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefst föstudaginn 5. febrúar í Fákaseli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link