Meistaradeild Ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju 2021
Gyða Sveinbjörg sigraði töltkeppni Meistaradeildar ungmenna síðastliðið vor

Dýralæknar Sandhólaferju verða aðalstyrktaraðilar Meistaradeildar Ungmenna 2021 og þökkum við þeim stuðninginn.
Stjórn MDU hefur ákveðið að framlengja skráningarfresti til þriðjudags 27.október fyrir þá sem hafa áhuga á að vera með og hafa ekki núþegar skráð sig í deildina.
Skráningu skal senda inná netfangið [email protected].
Meistaradeild Ungmenna er liðakeppni með 4 knöpum í hverju liði. Best er ef ungmenni safna sér saman í lið og senda inn. Þó geta einstaklingar líka sent inn ef þeir hafa áhuga, þannig er líka hægt að stofna lið með okkar hjálp.
Þátttökugjald er 150.000kr á lið. Hámarks fjöldi liða eru 10 lið.
Meistaradeild Ungmenna fer fram í Fákaseli í Ölfusi.
Keppniskvöldin verða 5 þetta árið og eru eftirfarandi:
Janúar 2021 – knapakvöld með yfirdómara og fyrirlestur
5.febrúar – fjórgangur V1
19.febrúar – fimmgangur F1
5.mars – gæðingfimi
19.mars – slaktaumatölt T2 og skeið
31.mars – tölt T1
Meistaradeild Ungmenna er liðakeppni og mun stigahæsta liðið deildarinnar hampa farandgrip deildarinnar.
Þrír knapar frá hverju liði keppa í V1, F1, T1 og gæðingafimi og engin takmörk eru á því hvað hver knapi getur keppt oft.
Tveir knapar frá hverju liði keppa í T2 og tveir í skeiði.
Hver knapi í hverju liði þarf að telja til stiga í allavega einni grein.
Tölt T1 geta allir knapar keppt en þrír efstu knapar hjá hverju liði telja til stiga.
Það verða a- og b- úrslit í V1, F1 og T1 en sigurvegari b-úrslita fer ekki uppí a-úrslit.
Í slaktaumatölti T2 verða bara a-úrslit með 6 knöpum.
Tvær umferðir verða í skeiðinu og besti tíminn gildir.
Gæðingafiminni munu 6 knapar ríða til úrslita.
Stjórnin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH