Meistaradeild Ungmenna verður á sínum stað í vetur
„Nú styttist í næsta keppnistímabil í hestaheiminum. Meistaradeild Ungmenna hefur fest sig í sessi sem einn að aðalviðburðum á hverju keppnistímabili og ætlar að sjálfssögðu að halda því áfram. Deildin hefur fengið nýjan styrktaraðila að deildinni og mun Top Reiter verða okkar aðalstyrktaraðili þennan veturinn. Þökkum við þeim kærlega fyrir að vilja styðja við bakið á þessum frábæru knöpum framtíðarinnar,“ segir í tilkynningu frá stjórn deildarinnar.
Meistaradeild Ungmenn verður áfram í Ingólfshvoli í Ölfusi og munu keppniskvöldin vera fimm talsins og keppt í 6 greinum, fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, slaktaumatölti T2, gæðingafimi og skeiði í gegnum höllina.
Hvert lið er skipað fjórum liðsmönnum og geta allir keppt í hverri grein en þrír efstu knaparnir telja til stiga í fjórgangi, fimmgangi, tölti og gæðingafimi en tveir efstu í slaktaumatölti og skeiðinu.
„Þau lið sem hafa áhuga á að taka þátt senda inn skráningu á netfangið [email protected] með upplýsingum um liðsmenn. Nafn á liðinu og liðsstjóra getur komið seinna. Ef einhverjir vilja taka þátt en eru ekki komnir í lið geta sent inn upplýsingar um sig á sama netfang og við sjáum hvað við getum gert. Skráningu lýkur sunnudaginn 13.nóvember. Ef einhverjir skrá eftir það er óvíst hvort þeir geti verið með.“ segir einnig í tilkynningunni en keppnisgjalfið er 150.000 kr.
Eins og áður verða a og b úrslit í tölti, fjórgangi og fimmgangi en sá sem sigrar b úrslitin mun ekki taka þátt í a úrslitunum. Einungis verða a úrslit í slaktaumatölti, engin úrslit í gæðingafimi og tveir sprettir í gegnum höllina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH