Meistaramótinu lauk með frábærum úrslitum í A-flokki
Sólon frá Þúfum stóð efstur A-flokks gæðinga knapi Guðmundur Björgvinsson
Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni lauk nú rétt í þessu en úrslitadagurinn heppnaðist vel í blíðvirði á Hellu. Það var gæðingadómararfélagið í samstarfi við Hestamannafélagið Geysi sem stóð að mótinu.
Keppni lauk með frábærum úrslitum í A-flokki gæðinga og var stórmótabragur á þeim úrslitum. Sólon frá Þúfum stóð efst í A-flokki gæðinga setinn af Guðmundi Björgvinsson en einkunn hans var 8,93 í öðru sæti varð Katalína frá Hafnarfirði með 8,84 í einkunn og í því þriðja Nagli frá Flagbjarnarholti með 8,83 í einkunn.
í A-flokki áhugamanna var það Silfurperla frá Lækjarbakka sem efst stóð með knapa sinn Kristinn Már sveinsson.
Í A-flokki ungmenna var það Kristján Árni Birgisson sem bætti við sig öðrum sigri dagsins á Rut frá Vöðlum með 8,29 í einkunn.
Magnús Ólason reið hesti sínum Veigari frá Sauðholti 2 til sigurs í B-flokki áhugamanna
A-úrslit A-flokkur gæðinga
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Sólon frá Þúfum / Guðmundur Björgvinsson | 8,93 |
| 2 | Katalína frá Hafnarfirði / Sólon Morthens | 8,84 |
| 3 | Nagli frá Flagbjarnarholti / Sigurbjörn Bárðarson | 8,83 |
| 4 | Atlas frá Lýsuhóli / Jóhann Kristinn Ragnarsson | 8,76 |
| 5 | Grámann frá Hofi á Höfðaströnd / Flosi Ólafsson | 8,67 |
| 6 | Jarl frá Árbæjarhjáleigu II / Hekla Katharína Kristinsdóttir | 8,60 |
| 7 | Blíða frá Ytri-Skógum / Bjarney Jóna Unnsteinsd. | 8,49 |
| 8 | Goði frá Bjarnarhöfn / Hans Þór Hilmarsson | 1,22 |
A-úrslit A-flokkur gæðinga áhugamenn
| Keppandi | Heildareinkunn | |
| 1 | Silfurperla frá Lækjarbakka / Kristinn Már Sveinsson | 8,25 |
| 2 | Seifur frá Stóra-Hofi / Brynjar Nói Sighvatsson | 8,20 |
| 3 | Kolskör frá Hárlaugsstöðum 2 / Lýdía Þorgeirsdóttir | 8,14 |
| 4 | Snilld frá Skeiðvöllum / Elín Hrönn Sigurðardóttir | 8,03 |
| 5 | Hamingja frá Vesturkoti / Eyrún Jónasdóttir | 7,80 |
A-úrslit A-flokkur ungmenna
| Keppandi | Heildareinkunn | |
| 1 | Kristján Árni Birgisson / Rut frá Vöðlum | 8,29 |
| 2 | Þorvaldur Logi Einarsson / Sóldögg frá Miðfelli 2 | 8,24 |
| 3 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Vösk frá Vöðlum | 8,17 |
| 4 | Anna María Bjarnadóttir / Snægrímur frá Grímarsstöðum | 7,14 |
A-úrslit B-flokkur áhugamanna
| Keppandi | Heildareinkunn | |
| 1 | Veigar frá Sauðholti 2 / Magnús Ólason | 8,37 |
| 2 | Fannar frá Blönduósi / Verena Stephanie Wellenhofer | 8,37 |
| 3 | Ósvör frá Reykjum / Kristinn Már Sveinsson | 8,33 |
| 4 | Ýmir frá Káratanga / Halldóra Anna Ómarsdóttir | 8,17 |
| 5 | Erla frá Eystri-Hól / Lýdía Þorgeirsdóttir | 8,07 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV