Meistarastofan á Alendis TV
Í gær hófst fyrsti þáttur í annarri seríu af Meistarastofunni á Alendis TV. Þættirnir verða átta talsins en þar fá áhorfendur að hitta öll lið Meistaradeildarinnar og kynnast knöpum á öðrum forsendum en oft áður. Áhorfendur fá að skyggnast inn í þjálfun og undirbúning fyrir Meistaradeildina og kannski fá að vita með hvaða hross knaparnir stefna.
Í fyrsta þættinum fáum við að hitta lið Ganghesta / Margrétarhofs en í því liði eru þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir, Reynir Örn Pálmason og Sigurður V. Matthíasson. Rætt var um síðast liðið tímabil, komandi tímabil og alls konar skemmtilegar persónubundnar spurningar.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt