Meistarastofan í kvöld á Alendis TV
Í kvöld verður sýndur annar þáttur í annarri seríu af Meistarastofunni á Alendis TV. Þættirnir verða átta talsins en þar fá áhorfendur að hitta öll lið Meistaradeildarinnar og kynnast knöpum á öðrum forsendum en oft áður. Áhorfendur fá að skyggnast inn í þjálfun og undirbúning fyrir Meistaradeildina og kannski fá að vita með hvaða hross knaparnir stefna.
Í öðrum þætti fáum við að hitta lið Hjarðartúns en í því liði eru þau Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson, Helga Una Björnsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson. Rætt var um síðast liðið tímabil, komandi tímabil og alls konar skemmtilegar persónubundnar spurningar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH