Menningarfjársjóður í máli og myndum

  • 21. október 2026
  • Fréttir
Bókin Réttir á Íslandi

Einn helsti menningarfjársjóður okkar Íslendinga eru þær fjölmörgu réttir sem finna má víða um land. Þessi mannvirki eru samofin sögu byggðar í landinu og standa sem lifandi vitnisburður um þrautseigju, verklag og lifnaðarhætti forfeðra okkar. Réttardagurinn skipar enn stóran sess í hugum og hjörtum landsmanna og eiga margir hlýjar minningar frá slíkum haustdögum, hvort sem réttað var sauðfé eða hrossum.

Þá er óhætt að fullyrða að hestamennska margra hverfist enn um fjallferðir, smalamennskur og réttastörf. Ungir sem aldnir ríða enn til rétta á góðum gæðingum og hlutverk hins trausta fjallhests stendur enn fyllilega fyrir sínu.

Í nýútkominni bók, sem ber heitið Réttir á Íslandi, tekst ljósmyndarinn Anna Fjóla Gísladóttir á við það mikla þrekvirki að mynda og skrá um 700 nafngreindar réttir víðs vegar um landið.

Verkið er einstaklega vandað og mikið stofustáss – ómissandi bók á borð hvers þess sem hefur brennandi áhuga á íslenskri menningu og sögu.

Bókin er fáanleg hjá Penninn/Eymundsson um allt land og mun fara í frekari dreifingu á næstunni.

Sýnishorn úr bókinni

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link