Metaðsókn í tamningapláss

  • 16. nóvember 2021
  • Fréttir
Fréttir frá Háskólanum á Hólum

Á hverri önn er hestaeigendum boðið að senda trippi í tamningu hjá nemendum á 2. ári við hestafræðideild Háskólans á Hólum. Samkvæmt fréttum frá skólanum var mikil eftirsókn eftir plássum fyrir tamningatrippi á vorönn 2022 og fylltust þau á örfáum klukkutímum. „Því miður voru margir sem komust ekki að, en ánægjulegt að sjá hversu margir telja tilboðið vera eftirsóknarvert fyrir sína hesta. Næsti möguleiki til að koma trippum að í tamningu er haustið 2022. Áhugasömum er bent á að fylgjast með á heimasíðu okkar þar sem plássin verða auglýst,“ segir í tilkynningunni

Heimasíða Háskólans á Hólum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link