Metamót Spretts
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Metamót Spretts. Skráning fer fram á sportfengur.com
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
A-flokkur Opinn flokkur / Áhugamannaflokkur
B-flokkur Opinn flokkur / Áhugamannaflokkur
Tölt T3 Opinn flokkur
100m fljúgandi ljósaskeið
150m skeið
250m skeið
Forstjóratölt
Rökkurbrokk (100m fljúgandi brokk)
A og B-flokkur eru sem fyrr á beinu brautinni. Töltkeppnin fer fram á hringvellinum og er lögleg keppnisgrein á mótinu sem og skeiðgreinarnar.
Athugið að skráning í rökkurbrokk kostar litlar 2000 krónur og þar eru peningaverðlaun í boði fyrir þrjá bestu tímana líkt og í skeiðgreinunum. Rökkurbrokkið er ný grein sem fyrst var keppt í á mótinu í fyrra. Skráning í rökkurbrokkið er undir liðnum “annað”.
Ekki missa af einu allra skemmtilegasta móti ársins!
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband í s.869-8425 eða senda póst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH