Mette Mannseth knapi ársins hjá Skagfirðingi
Eftirfarandi eru titilhafar hjá hestamannafélaginu Skagfirðingi árið 2021.
Knapi ársins 2021 er Mette Mannseth en Mette átti góðu gengi að fagna á árinu (2021). Hún sigraði A-flokk á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi á hesti sínum Kalsa frá Þúfum og var með tvö hross í A-úrslitum í B-flokki þau List frá Þúfum og Blund frá Þúfum ásamt því að vera í þriðja sæti í skeiði á Vívalda frá Torfunesi. Á gríðarlega sterku Íslandsmóti reið hún fjórum hestum til úrslita þeim Kalsa frá Þúfum í fimmgangi, List frá Þúfum í tölti, Blund frá Þúfum í slaktaumatölti og Skálmöld frá Þúfum í fjórgangi. Hún náði einnig virkilega góðum árangri á Íþróttamóti UMSS og Skagfirðings á Hólum í vor þar sem hún sigraði slaktaumatölt, fjórgang og gæðingaskeið ásamt því að hljóta annað sæti í tölti og fimmgangi. Hæstu einkunn ársins í gæðingaskeiði eiga Mette Mannseth og Vivaldi frá Torfunesi. Mette Mannseth hlaut reiðmennskuverðlaun FT á Fjórðungsmótinu og í texta frá FT sagði “Reiðmennskuverðlaun FT er viðurkenning þar sem saman fer framúrskarandi reiðmennska, áverkalausir hestar og prúð framkoma á mótinu í heild sinni. Mette Mannseth hefur sýnt það með fjölda hrossa á mótinu, flest úr eigin ræktun. Uppúr stendur vel þjálfuð hross, einstaklega falleg framkoma, ósýnilegar ábendingar, mikil orka og útgeislun. Knapi og hross verða svo sannarlega eitt.”
Mette Moe Mannseth er íþrótta -og gæðingaknapi ársins
Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins
Guðmar Freyr Magnússon knapi ársins í ungmennaflokki
Pétur Grétarsson knapi ársins í áhugamannaflokki.
Stjórn Skagfirðings verðlaunaði Íslandsmeistara sína frá því í sumar en það voru Skagfirðingarnir Eyrún Ýr Pálsdóttir sem sigraði fimmgang á Hrannari frá Flugumýri II og Guðmar Freyr Magnússon sem sigraði tölt ungmenna á Sigursteini frá Íbishóli.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH