Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum unnu aftur!

  • 4. mars 2020
  • Fréttir

Mette og Skálmöld Ljósmynd: Bjarney Anna Þórsdóttir

Í kvöld fór fram í Léttishöllinni á Akureyri  þriðja keppniskvöldið í Meistaradeild KS þetta tímabilið þegar keppt var í fjórgangi.

Fyrir kvöldið var Mette Mannseth í forystu í einstaklingskeppninni og lið Þúfna í efsta sæti í liðakeppninni. Mette sigraði þessa grein í fyrra á Skálmöld frá Þúfum og voru þær stöllur skráðar til leiks í kvöld. Þær léku sama leik og í fyrra og stóðu uppi sem sigurvegarar nú með einkunnina 7,67 í úrslitum. Þær hlutu m.a. einkunnina 8,5 fyrir brokk sem var fyllilega verðskuldað, mikið fjaðurmagn og svif.

Í öðru sæti varð Randi Holaker á Þyt frá Skáney með 7,33 í einkunn og í því þriðja Haukur Bjarnason á Ísari frá Skáney. Þau hjón gerðu því góða ferð norður um heiðar úr Borgarfirðinum.

Það var lið Þúfna sem stóð uppi sem stigahæsta lið kvöldsins og hafa því sigrað liðaplattan á öllum þremur keppniskvöldum ársins í deildinni.

 

Fjórgangur V1
Opinn flokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum 7,43
2 Randi Holaker Þytur frá Skáney 7,03
3 Barbara Wenzl Krókur frá Bæ 6,97
4 Bergrún Ingólfsdóttir Þórbjörn frá Tvennu 6,83
5 Haukur Bjarnason Ísar frá Skáney 6,77
6 Þórdís Inga Pálsdóttir Njörður frá Flugumýri II 6,70
7-8 Vera Evi Schneiderchen Bragur frá Steinnesi 6,63
7-8 Viktoría Eik Elvarsdóttir Gjöf frá Sjávarborg 6,63
9-11 Ástríður Magnúsdóttir Þinur frá Enni 6,60
9-11 Þórarinn Eymundsson Hnjúkur frá Saurbæ 6,60
9-11 Bjarni Jónasson Úlfhildur frá Strönd 6,60
12 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Prins frá Skúfslæk 6,57
13 Brynja Kristinsdóttir Lýsir frá Breiðstöðum 6,47
14-15 Fanney Dögg Indriðadóttir Trygglind frá Grafarkoti 6,33
14-15 Jóhann Magnússon Embla frá Þóreyjarnúpi 6,33
16 Sina Scholz Nói frá Saurbæ 6,30
17-18 Elvar Logi Friðriksson Vígablesi frá Djúpadal 6,23
17-18 Þorsteinn Björnsson Ævar frá Hólum 6,23
19 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 6,17
20 Fanndís Viðarsdóttir Glóð frá Hólakoti 6,13
21 Magnús Bragi Magnússon Aðalsteinn frá Íbishóli 6,10
22 Hannes Brynjar Sigurgeirson Bragi frá Þingnesi 6,07
23 Guðmar Freyr Magnússon Sigursteinn frá Íbishóli 5,80
24 Agnar Þór Magnússon Grímur frá Garðshorni á Þelamörk 5,53
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Þórdís Inga Pálsdóttir Njörður frá Flugumýri II 7,07
7 Vera Evi Schneiderchen Bragur frá Steinnesi 7,00
8 Viktoría Eik Elvarsdóttir Gjöf frá Sjávarborg 6,90
9 Ástríður Magnúsdóttir Þinur frá Enni 6,77
10 Þórarinn Eymundsson Hnjúkur frá Saurbæ 6,72
11 Bjarni Jónasson Úlfhildur frá Strönd 6,53
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum 7,67
2 Randi Holaker Þytur frá Skáney 7,33
3 Haukur Bjarnason Ísar frá Skáney 6,83
4-5 Bergrún Ingólfsdóttir Þórbjörn frá Tvennu 6,67
4-5 Barbara Wenzl Krókur frá Bæ 6,67
6 Þórdís Inga Pálsdóttir Njörður frá Flugumýri II 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link