Mette marði sigur
Gríðarspennandi fimmgangskeppni fór fram í Svaðastaðahöll í gær þegar sterkir gæðingar og meistaraknapar öttu kappi í KS-deildinni í gær.
Efstur inn í úrslit var Bjarni Jónasson á Djásn frá Hnjúki en Mette Mannseth á Hnokka frá Þúfum var ekki langt undan.
B-úrslitin sigraði svo Þorbjörn H. Matthíasson á Gígju frá Litla Garði en þau vöktu verðskuldaða athygli á Ístölti Austurlands á dögunum þegar þau sigruðu A-flokk á ísnum.
Í A-úrslitum háðu svo Bjarni og Mette sannkallað einvígi og marði Mette sigur að lokum.
Meðfylgjandi eru úrslit og myndir frá Höskuldi B. Erlingssyni.
A-úrslit
Eink
1. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 7,26
2. Bjarni Jónasson Djásn frá Hnjúki 7,17
3. Sölvi Sigurðarson Kristall frá Hvítanesi 6,76
4. Ísólfur L Þórisson Kvaran frá Lækjamóti 6,74
5. Þorbjörn H Matthíasson Gýgja frá Litla Garði 6,57
6. Baldvin Ari Guðlaugsson Jökull frá E-Rauðalæk 6,55
B-úrslit
Eink
6. Þorbjörn H Matthíasson Gýgja frá Litla Garði 6,60
7. Viðar Bragason Sísí frá Björgum 6,50
8. Tryggvi Björnsson Rammur frá Höfðabakka 6,40
9. Þorsteinn Björnsson Kylja frá Hólum 6,38
Forkeppni
Knapi Hestur Eink
1. Bjarni Jónasson Djásn frá Hnjúki 6,87
2. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 6,83
3. Baldvin Ari Guðlaugsson Jökull frá Efri Rauðalæk 6,43
4. Ísólfur L Þórisson Kvaran frá Lækjamóti 6,40
5. Sölvi Sigurðarson Kristall frá Hvítanesi 6,40
6. Viðar Bragason Sísí frá Björgum 6,27
7. Tryggvi Björnsson Rammur frá Höfðabakka 6,20
8. Þorbjörn H Matthíasson Gýgja frá Litla Garði 6,13
9. Þorsteinn Björnsson Kylja frá Hólum 6,10
10. Sveinn B Friðriksson Glaumur frá Varmalæk 6,07
11. Þórarinn Eymundsson Seiður frá Hörgslandi 6,03
12. Ólafur Magnússon Ódeseifur frá Möðrufelli 5,97
13. Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu 5,83
14. Fanney Dögg Indriðad Sýn frá Grafarkoti 5,83
15. Elvar Einarsson Laufi frá S-Skörðugili 5,67
16. Elvar Logi Friðriksson Ræll frá Gauksmýri 5,40
17. Erlingur Ingvarsson Hátíð frá Syðra Fjalli 5,03
18. Magnús B Magnússon Vafi frá Ysta Mó 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH