Miðar á Stóðhestaveisluna í sölu á morgun
Á morgun verður hægt að kaupa miða á Stóðhestaveisluna 2025 sem haldin verður í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli laugardaginn 5.apríl kl 18:00.
Þetta er stærsti og vinsælasti innanhúss viðburður hrossaræktarinnar á Íslandi svo ekki láta þessa veislu framhjá þér fara.
Hægt er að kaupa miða í verslunum Líflands í Reykjavík og á Suðurlandi og verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi.
Vertu tímanlega að útvega þér miða en takmarkað magn er í boði og síðast komust færri að en vildu. Miðaverð er 6.500 krónur og hverjum miða fylgir Biblía hrossaræktendans, Stóðhestabókin!
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt