Miðasala hafin á Allra Sterkustu
Allra sterkustu á vegum LH verður haldið í TM reiðhöllinni í Víðidal þann 20. apríl næstkomandi kl. 19:30. Húsið opnar kl. 17:00 og er mótið til styrktar Landsliði Íslands í hestaíþróttum.
„Allra sterkustu fjórgangshestar landsins
U21-landsliðsknapar með sýningaratriði
Allra sterkustu slaktaumatöltarar landsins
Magnaðar kynbótahryssur
Allra sterkustu fimmgangshestar landsins
Geggjaðir stóðhestar
Allra sterkustu tölthestar landsins“
Miðasala er hafin á viðburðinn en hægt er að kaupa miða HÉR. Verð er 4.000 kr.
Stóðhestavelta landsliðsins verður einnig á sínum stað en sala hefst þriðjudaginn 19. apríl. Stóðhestaveltan er til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. Hver keyptur miði veitir aðgang fyrir eina hryssu á árinu 2022 undir einn af þeim frábæru gæðingum sem eru í pottinum. Dregið verður úr seldum miðum og verður drátturinn auglýstur síðar.
Hægt er að skoða hér fyrir neðan hestana sem hafa verið kynntir til leiks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH