Miðasala í fullum gangi

  • 20. október 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Uppskeruhátíð hestamanna.

Undirbúningur fyrir hátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum 7. nóvember næstkomandi er í fullum gangi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið. 

Miðasala: Banki 301-26-14129, kt. 660304-2580. Miðar afhentir 5. – 6. nóvember milli kl. 9:00-15:00 eða við innganginn 7. nóvember.

Miðasölu lýkur kl. 18:00 miðvikudaginn 4. nóvember.

Borðapantanir: Eftir greiðslu, senda borðapöntun og nafnalista borðgesta á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link